Vefsíðugerð fyrir íslensk fyrirtæki.

Við hönnum, smíðum og sjáum um vefi sem fólk tekur mark á. Fjögur nýleg verk tala fyrir okkur.

01 / 04 chessafterdark.is

Vefir sem tala sínu máli.

Hlaðvörp, lögmannsstofa og ferðaþjónusta. Ólíkur rekstur, sama krafan: vefur sem fólk tekur mark á. Hvert verk er rakið í fimm skrefum, í sömu röð og gesturinn fer um vefinn.

01 Hlaðvarp chessafterdark.is ↗

Chess After Dark

Eitt stærsta hlaðvarp landsins þurfti heimili fyrir hundruð þátta. Vefurinn leiðir gestinn frá nýjasta þættinum, í gegnum safnið og alla leið að þættinum sem hann leitar að.

Skoða vefinn
370+
þættir
2.5M+
spilanir
1M+
klst. hlustað
Chess After Dark: Forsíða Chess After Dark: Flokkar Chess After Dark: Þáttasafn Chess After Dark: Þáttasíða Chess After Dark: í síma
02 Lögmannsstofa intralegem.is ↗

Intra Legem

Lögmannsstofa Hallmundar Albertssonar selur traust. Vefurinn er því rólegur og vandaður, á íslensku og ensku, og hvert skref færir gestinn nær fyrsta samtalinu.

Skoða vefinn
7
starfssvið
2
tungumál
1
síða
Intra Legem: Forsíða Intra Legem: Starfssvið Intra Legem: Ferill Intra Legem: Samband Intra Legem: í síma
03 Íþróttahlaðvarp betkastid.is ↗

Betkastið

Eitt vinsælasta íþróttahlaðvarp landsins vildi vef með sama tón og þættirnir: stuðlar, spár og stemning. Hannaður og smíðaður frá grunni.

Skoða vefinn
200K
hlustanir
100+
þættir
1.8M
TikTok áhorf
Betkastið: Forsíða Betkastið: Klippur Betkastið: Flokkar Betkastið: Þáttasafn Betkastið: í síma
04 Ferðaþjónusta bellaitalia.is ↗

Bella Italia

Ferðaþjónusta sem leigir út villur með sundlaug og skipuleggur borgarferðir um Ítalíu. Stórar myndir selja ferðina og leiðin að tilboði er alltaf stutt.

Skoða vefinn
5
borgir
14
héruð
6
umsagnir
Bella Italia: Forsíða Bella Italia: Villur Bella Italia: Borgir Bella Italia: Fyrirspurn Bella Italia: í síma

Þessi síða er sýnidæmið.

Við handskrifum hraðan kóða sem stenst mælingar. Tölurnar hér eru ekki af glæru: þær eru mældar í þínum vafra, rétt í þessu.

  • A

    Hraði

    Léttur, handskrifaður kóði án þungra forritasafna. Mælingin hér til hliðar er af síðunni sem þú ert á.

  • B

    Öll tæki

    Hver vefur er prófaður á öllum skjástærðum. Síðasta skrefið í hverju verki hér að ofan sýnir hann í síma.

  • C

    Umsjón

    Við erum á staðnum eftir opnun, með lagfæringar og uppfærslur sem halda öllu í toppstandi.

Fjögur skref, ekkert vesen.

Einfalt vinnulag sem heldur hlutunum á hreyfingu og þér með í ráðum.

  1. 01

    Spjall

    Við setjumst niður, í eigin persónu eða í símtali, og finnum út hvað vefsíðan þarf raunverulega að gera fyrir fyrirtækið þitt.

  2. 02

    Hönnun

    Við mótum útlit sem lítur út eins og þú og enginn annar, og fínpússum það saman þar til það smellur.

  3. 03

    Smíði

    Við handskrifum vefinn svo hann sé hraður, aðgengilegur og auðveldur í rekstri, prófaður á öllum skjástærðum.

  4. 04

    Opnun

    Við förum í loftið, setjum upp hýsingu og erum á staðnum fyrir lagfæringarnar sem fylgja.

Áttu fyrirtæki sem á skilið betri vefsíðu